Hýsir.is • Síðumúli 1 (önnur hæð), 108 Reykjavík • Sími 588 4488 • hysir@hysir.is

Vefpósturinn

Öll lén í hýsingu hjá okkur hafa aðgang að vefpósti hvar og hvenær sem er. Ef við tökum www.hysir.is sem dæmi þá getum við skrifað http://webmail.hysir.is til að fara í vefpóstinn. ATH. ekki má setja www. fremst í slóðina.

Notendanafn: Notendanafnið þitt er það sem er fyrir framan @ merkið í netfanginu.
Lykilorð: Þú átt að hafa fengið það sent áður. Einnig geturðu ef þú vilt, breytt því í vefpóstinum. Ýtir einfaldlega á Password hnappinn og fyllir út.

Ef þú vilt senda póst þá ýtirðu á Compose, þá kemur nýr gluggi, en hann útskýrir sig nánast sjálfur.

 

Að senda póst á hóp netfanga í gegnum vefpóstinn (webmail.þitt lén.is).

1. Farið er inní vefpóstinn og valið Netfangabók eða Address Book.

2. Þar er valið My Address Books (flipinn uppi lengst til vinstri).

3. Býrð til hópa sem þú vilt senda á t.d starfsmenn eða viðskiptavinir (choose a name).

4. Svo býrðu til netföng inn í þá hópa með því að velja (New Contact) sem er þriðji hnappur frá vinstri uppi.

5. Þú velur í hvaða hóp þú vilt að viðkomandi fari í og setur svo inn viðeigandi upplýsingar.

6. Svo þegar þú ætlar að senda póst á þessa hópa ferðu í New message eins og gert er venjulega og velur svo Netfangabók, hún er fyrir miðju vinstramegin.

7. Nú færðu upp glugga þar sem þú velur netfangabók og getur jafnvel leitað í henni. Þú upp lista með netföngunum í þeim hóp (eða samkv. leitar skilirðunum) og getur valið hvort viðtakandi fái póstinn beint eða hann sé í cc (eða jafnvel bcc). Hægt er að velja marga í einu með því að halda músahnappinum niðri og draga yfir nöfnin.

Tilkynningar

Lokað eftir hádegi ...
Vinsamlegast athugið að lokað verður eftir hádegi í dag 8. des ...
Sterk og veik lykilorð ...
Að gefnu tilefni viljum við benda viðskiptavinum á að ganga úr skugga um...

Allt um okkur

- Síðumúli 1 - Rvk
- 588 4488
- www.hysir.is
Hannað af