

Skoða : Útlit 1 / Útlit 2 / Útlit 3 / Útlit 4
Hvað er á síðunni:
Þessi síða er sérstök að því leyti að textatenglar og myndahnappar eru í flash formati og þegar farið er inná síðuna þá dragast textatenglarnir inná síðuna og myndahnapparnir koma fljúgandi sem oftar en ekki vekur mikla athygli.
Á síðunni er stór forsíðumynd þar sem hægt er að láta margar myndir birtast til skiptis eða látið eina mynd vera staka. Vinstra megin að ofanverðu við þessa forsíðumynd er texti sem hægt er að skipta út að eigin vild fyrir lógó, mynd eða nýjan texta. Hægra megin að ofanverðu við forsíðumynd eru textatenglar en út frá þeim er hægt að tengja undirtengla sem birtast í fallvalmynd. Þeir vísa inná undirsíður á síðunni þinni og þú ræður hversu margir þeir eru. Fyrir neðan við forsíðumyndina eru myndahnappar en þeir vísa einnig inná undirsíður sem þú býrð til.
Hvaða kerfi fylgja með og hvað get ég gert með þeim:
Öll kerfin sem hægt er að vinna með á síðunum okkar notast við Word veraldarvefsins, það lítur alveg eins út og Microsoft Word og hefur sömu eiginleika. Það er gert þannig að sem auðveldast er að uppfæra og vinna með efni inná síðunum okkar. Ef þú kannt á Word þá kanntu á kerfin okkar.
Fréttakerfi/blogg, þar sem þú getur sett inn nýjar fréttir reglulega inn. Þær birtast í þeirri röð sem þær eru settar inn og dagsetning fylgir með.
Myndalbúm, þar sem þú getur hlaðið inn myndum og búið til myndasöfn sem birtast á heimasíðunni þinni.
Heimsóknartölfræði, þú getur fylgst með hversu margir heimsekja vefinn þinn, hvenar þeir heimsækja vefinn og hvaðan þeir eru að koma. Þetta getur komið sér mjög vel þegar vefurinn er auglýstur og þig langar til þess að vita hvort auglýsingin sé að skila sér sem aukning í heimsóknum inná vefinn þinn.
Útlitsstillingar, þar er hægt að breyta litum á allri síðunni, textum, textatenglum og myndahnöppum sem dæmi. Þú getur einnig breytt texta á forsíðu síðunnar (sem er beint fyrir neðan miðjumyndina) með Word veraldarvefsins.
Í útlitsstillingum getur þú einnig látið síðuna þína finnast í leitarvélum, þar skrifar þú inn stykkorð sem tengjast vefnum þínum og þegar þessi tilteknu orð verða sleginn inn á leitarvélum þá munu leitarvélarnir fyrst lesa þessi orð þegar þær fara í gegnum síðuna þína.
Textatenglar, þú getur breytt núverandi textatenglum, tekið þá út eða bætt fleirum við.
Myndahnappar, þú getur breytt núverandi myndahnöppum, tekið þá út eða bætt fleirum við.
Hægt er að bæta við þetta útlit öllum þeim kerfum sem við bjóðum upp á.
Hvað gerum við:
Þegar versluð er stöðluð vefsíða hjá Hýsir fylgir með að visst magn af efni sé sett á síðunna. Efnið þarf að skilast á réttan hátt og á réttum tíma en allt slíkt er mjög skírt tekið fram í verksamningnum sem gerður er. Miðað er við að settir séu inn 4-6 textatenglar, 4-6 myndhnappar, 4-6 forsíðumyndir og almenn innsetning texta inná textasíður en þó er þessi vinna miðuð við 2 stunda vinnu að hámarki. Ef óskað er eftir meiri vinnu af okkar hálfu að þá er unnið á tímakaupi samkvæmt verðskrá en ávallt er gert tilboð í það verk sem óskað er eftir.Myndbönd:
Myndhnappar -- Forsíðumyndir og baksíðumyndir -- Textatenglar -- Stillingar -- Fréttir
Verð:
99.990 kr án vsk
