Hýsir.is • Síðumúli 1 (önnur hæð), 108 Reykjavík • Sími 588 4488 • hysir@hysir.is

Útlit 2

Skoða : Útlit 1 / Útlit 3 / Útlit 4 / Útlit 5

Útlit 2

 


Hvað er á síðunni:

Á miðri síðunni eru fimm myndahnappar, þú getur valið og ákveðið hversu marga þú vilt hafa. Þeir beina allir á undirsíður sem þú hefur gert og valið að láta þá vísa á. Vinstra megin að ofanverðu við þessa myndahnappa er texti sem hægt er að skipta út að eigin vild fyrir lógó, mynd eða nýjan texta. Vinstra megin að neðanverðu við myndahnappanna eru textatenglar sem vísa á undirsíður einnig. Þú getur valið og ákveðið hversu margir þeir eru og hvert hver og einn af þeim vísar. Hægra megin við textatenglana er rammi þar sem þú getur skrifað texta með Word veraldarvefsins hjá okkur. Hægra megin við rammann getur þú sett inn upplýsingar um eigendur síðunar.

Hvaða kerfi fylgja með og hvað get ég gert með þeim:

Öll kerfin sem hægt er að vinna með á síðunum okkar notast við Word veraldarvefsins, það lítur alveg eins út og Microsoft Word og hefur sömu eiginleika. Það er gert þannig að sem auðveldast er að uppfæra og vinna með efni inná síðunum okkar. Ef þú kannt á Word þá kanntu á kerfin okkar.

Fréttakerfi/blogg, þar sem þú getur sett inn nýjar fréttir reglulega inn. Þær birtast í þeirri röð sem þær eru settar inn og dagsetning fylgir með.

Myndalbúm, þar sem þú getur hlaðið inn myndum og búið til myndasöfn sem birtast á heimasíðunni þinni.

Heimsóknartölfræði, þú getur fylgst með hversu margir heimsekja vefinn þinn, hvenar þeir heimsækja vefinn og hvaðan þeir eru að koma. Þetta getur komið sér mjög vel þegar vefurinn er auglýstur og þig langar til þess að vita hvort auglýsingin sé að skila sér sem aukning í heimsóknum inná vefinn þinn.

Útlitsstillingar, þar er hægt að breyta litum á allri síðunni, textum, textatenglum og myndahnöppum sem dæmi. Þú getur einnig breytt texta á forsíðu síðunnar (sem er beint fyrir neðan miðjumyndina) með Word veraldarvefsins.

Í útlitsstillingum getur þú einnig látið síðuna þína finnast í leitarvélum, þar skrifar þú inn stykkorð sem tengjast vefnum þínum og þegar þessi tilteknu orð verða sleginn inn á leitarvélum þá munu leitarvélarnir fyrst lesa þessi orð þegar þær fara í gegnum síðuna þína.

Textatenglar, þú getur breytt núverandi textatenglum, tekið þá út eða bætt fleirum við.

Myndahnappar, þú getur breytt núverandi myndahnöppum, tekið þá út eða bætt fleirum við.

Hægt er að bæta við þetta útlit öllum þeim kerfum sem við bjóðum upp á.

Hvað gerum við:

Þegar versluð er stöðluð vefsíða hjá Hýsir fylgir með að visst magn af efni sé sett á síðunna. Efnið þarf að skilast á réttan hátt og á réttum tíma en allt slíkt er mjög skírt tekið fram í verksamningnum sem gerður er. Miðað er við að settir séu inn 4-6 textatenglar, 4-6 myndhnappar, 4-6 forsíðumyndir og almenn innsetning texta inná textasíður en þó er þessi vinna miðuð við 2 stunda vinnu að hámarki. Ef óskað er eftir meiri vinnu af okkar hálfu að þá er unnið á tímakaupi samkvæmt verðskrá en ávallt er gert tilboð í það verk sem óskað er eftir.

Myndbönd:

Myndhnappar -- Forsíðumyndir og baksíðumyndir -- Textatenglar -- Stillingar -- Fréttir

Verð:

49.990 kr án vsk

Tilkynningar

Lokað eftir hádegi ...
Vinsamlegast athugið að lokað verður eftir hádegi í dag 8. des ...
Sterk og veik lykilorð ...
Að gefnu tilefni viljum við benda viðskiptavinum á að ganga úr skugga um...

Allt um okkur

- Síðumúli 1 - Rvk
- 588 4488
- www.hysir.is
Hannað af