Hýsir.is • Síðumúli 1 (önnur hæð), 108 Reykjavík • Sími 588 4488 • hysir@hysir.is

Uppsetning tölvupósts

Hér til hliðar má sjá skref fyrir skref á uppsetningu tölvupósts í helstu póstforritunum. Í einhverjum þeirra er einnig að finna myndband sem sýnir ykkur hvernig skal farið að. En hér eru þær helstu upplýsingar sem þú þarft að vita með uppsetningu pósts (á við um öll póstforrit):

Notendanafn og lykilorð
Notendanafn er það sem er fyrir framan @ merkið í netfanginu þínu.
Lykilorðið átt þú að hafa fengið sent áður.

Incoming mail server:
Mail server er þýtt sem póstþjónn. Póstþjónninn sinnir því hlutverki að koma tölvupósti sem sendur er, áleiðis á réttan viðtakanda, og er það staðurinn sem þú tengir þig við þegar þú vilt komast í póstinn þinn. Svo að þú getir sótt þinn póst þarft þú þarna að skrifa "mail.lénið.þitt." Sem dæmi mætti segja mail.hysir.is sem er póstþjónninn fyrir lénið hysir.is.

Outgoing mail server:
Í þessum reit má nota það sama og fyrir incoming, en þú mátt hafa annan póstþjón þarna ef þú vilt. Þó er mælt með því að nota þann póstþjón sem netfangið tilheyrir, en þú gætir viljað nota póstþjóninn hjá þeim þjónustuaðila sem þú kaupir nettenginguna hjá (væntanlega meiri hraði).

Póstþjónar hjá helstu aðilunum:
Síminn – postur.simnet.is
Vodafone – mail.internet.is
Hive – smtp.hive.is
Btnet – mail.btnet.is

Tilkynningar

Lokað eftir hádegi ...
Vinsamlegast athugið að lokað verður eftir hádegi í dag 8. des ...
Sterk og veik lykilorð ...
Að gefnu tilefni viljum við benda viðskiptavinum á að ganga úr skugga um...

Allt um okkur

- Síðumúli 1 - Rvk
- 588 4488
- www.hysir.is
Hannað af