Hýsir.is • Síðumúli 1 (önnur hæð), 108 Reykjavík • Sími 588 4488 • hysir@hysir.is

Spurt og svarað

Hér koma þær helstu spurningar sem við fáum og svör við þeim. Ef einhverjum spurningum er ósvarað ekki hika við að hafa samband!

1. Hvað kostar að fá hjá ykkur vefsíðu?
Vefsíður hjá okkur kosta frá 49.900,- kr +vsk. Okkar verð eru betri en hjá helstu samkeppnisaðilum og henta ákaflega vel fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.

Ekki hika við að hafa samband í síma 588 4488 eða í gegnum “Hafðu samband” til að fá nánari upplýsingar eða til þess að bóka fund með ráðgjafa frá okkur.

2. Hvað tekur langan tíma að fá vefsíðuna í notkun?
Við afhendum vefsíðuna þína á 2-4 vikum eftir að við höfum fengið allt efni í hendurnar. Ef um sérhönnun eða stærri veflausnir er að ræða þá er tíminn breytilegur.

3. Hverjir eru kostir þess að vera með vefumsjónarkerfi?
Kostir þess að vera með gott vefumsjónarkerfi eru margir. Með vefumsjónarkerfinu okkar þá getur þú uppfært síðuna þína þegar þér hentar hvenar sem þú vilt og hefur tíma.

4. Hvar get ég keypt (.is) lén og hvað kostar það?
ISNIC er eina fyrirtækið sem selur íslensk lén (domain). Í raun er um að ræða að ISNIC leigir út lénin og rukka þeir fyrir leiguna með einu árlegu gjaldi.

Upphafs eða svokallaður stofnkostnaður við að fá sér íslenskt lén er kr. 6.982,- og er það gjald fyrir afnot að einu léni í eitt ár. Eftir það er árlegt endurnýjunargjald sem er það sama það sama kr. 6.982,-. Ef um er að ræða sér-íslensk lén, þá kosta þau aðeins 1.000.- . Nánari upplýsingar eru á vefsíðu ISNIC, www.isnic.is. ( þessi verð eru með vsk.)

5. Fylgir vefmæling heimasíðum frá Hýsir?
Já, vefmælingin sem fylgir öllum heimasíðum frá okkur kallast Webstat. Vefmælingin uppfærist tvisvar á sólarhring og sýnir helstu upplýsingar um heimsóknarfjölda og ítarlegar upplýsingar um notendurnar sem heimsækja vefinn.

Ef þú hefur einhverjar frekari spurningar ekki hika við að hafa samband í gegnum vefinn okkar eða síma.

Tilkynningar

Lokað eftir hádegi ...
Vinsamlegast athugið að lokað verður eftir hádegi í dag 8. des ...
Sterk og veik lykilorð ...
Að gefnu tilefni viljum við benda viðskiptavinum á að ganga úr skugga um...

Allt um okkur

- Síðumúli 1 - Rvk
- 588 4488
- www.hysir.is
Hannað af