Hýsir.is • Síðumúli 1 (önnur hæð), 108 Reykjavík • Sími 588 4488 • hysir@hysir.is

Sérsniðnar lausnir

Sérsniðnar lausnir í vefsíðugerð er eitthvað sem við hjá Hýsir höfum verið að leggja meiri áherslu á, síðustu misseri. Sérsniðnar lausnir eru allt frá einföldum kerfum til mjög flókinna vefsvæða með margþættu vefumsjónarkerfi. Við bjóðum uppá að hanna útlit á þessar lausnir fyrir viðskiptavini okkar en einnig getum við sniðið lausnirnar að hönnun sem viðskiptavinur kemur með. Þessar lausnir eru gerðar í samvinnu við viðskiptavini okkar og er reynt að nálgast þarfir þeirra eins langt og tækni dagsins leyfir. Við hjá Hýsir erum alltaf með nýjar veflausnir í þróun hjá okkur og fyrri lausnir eru uppfærðar reglulega til að mæta hraðri þróun tækninnar.

Dæmi um nýjar sérlausnir hjá okkur er vefurinn annabelkarmel.is og svo auðvitað nýji vefurinn okkar sem þú ert staddur á, hysir.is.

 

 

Left
Right

 

Sérsniðnar vefhannanir

Við bjóðum okkar viðskipavinum uppá hönnun á vefsíðum og útliti kerfa. Hönnun í eðli sínu er sérstök og er þar nánast hægt að gera allt milli himins og jarðar. Hver sérhönnun er unnin í samstarfi við viðskiptavin og reynt er að nálgast þá sýn sem hann hefur eins og auðið er.

Í öll verk sem fela í sér sérsniðnar lausnir eða hannanir gerum við verðtilboð áður en hafist er handa. Slíkt verðtilboð eru auðvelt að nálgast með því að hafa samband við okkur í gegnum síma 588 4488 eða með því að hafa samband í gegnum síðuna okkar.

Tilkynningar

Lokað eftir hádegi ...
Vinsamlegast athugið að lokað verður eftir hádegi í dag 8. des ...
Sterk og veik lykilorð ...
Að gefnu tilefni viljum við benda viðskiptavinum á að ganga úr skugga um...

Allt um okkur

- Síðumúli 1 - Rvk
- 588 4488
- www.hysir.is
Hannað af