
Sölu og Markaðsstjóri / CMO D3

Skref fyrir skref leiðbeiningar til þess að ná í póstinn þinn með Microsoft Outlook Express.
Skref 1
Smelltu á Tools -> Accounts.
Skref 2
Smelltu á Add -> Mail.

Skref 3
Sláðu inn nafn/kenniheiti sem þið viljið að birtist þegar þið sendið póst.

Skref 4
Sláðu inn netfangið þitt (dæmi: kennsla@hysir.is), og þar næst smellirðu á Next hnappinn.

Skref 5
Í þessari valmynd ertu beðin/n um að velja hverrar tegundar póstþjónninn er, veldu þá POP3.
Því næst þarftu að skrifa slóðina að póstþjóninum. Póstþjónninn sem þú sækir þinn póst á ætti að vera "mail.lénið.þitt." Sem dæmi mætti segja mail.hysir.is sem er póstþjónninn fyrir lénið hysir.is.
Og að lokum ertu beðin/n um outgoing mail server. Í þessum reit má nota það sama og fyrir incoming, en þú mátt hafa annan póstþjón þarna ef þú vilt. Þó er mælt með því að nota þann póstþjón sem netfangið tilheyrir, en þú gætir viljað nota póstþjóninn hjá þeim þjónustuaðila sem þú kaupir nettenginguna hjá (væntanlega meiri hraði). En fyrir þetta dæmi okkar notum við einfaldlega mail.hysir.is (skiptu út fyrir mail.lénið.þitt).
Smelltu svo á next þegar þú hefur fyllt inn í reitina.

Skref 6
Notendanafn er það sem er fyrir framan @ merkið í netfanginu þínu. Í þessu sýningardæmi væri það kennsla.
Lykilorðið átt þú að hafa fengið sent áður.
Smelltu svo á next.

Skref 7
Ýttu á Finish og í næsta glugga Close nema þú ætlir að setja upp fleiri netföng. Í því tilfelli, þá er alveg sami ferill fyrir það.






