Hýsir.is • Síðumúli 1 (önnur hæð), 108 Reykjavík • Sími 588 4488 • hysir@hysir.is

Að kaupa lén með .is endingu:

Til þess að kaupa lén með .is endingu þarf að fara inná vefinn www.isnic.is. Þegar þangað er komið skal nafn lénsins sem þú hefur áhuga á slegið inn efst í hægra horninu ásamt .is endingunni. Dæmi: lenidmitt.is. Það skal slegið inn í kassann sem er hægra meginn við Whois: og svo er ýtt á áfram til þess að fá niðurstöður um hvort lénið sem þú slóst inn sé laust eða ekki.

Þegar þú hefur fundið lénið sem þú vilt að smelliru á nýskráning sem er fyrir neðan Lén vinstra megin á síðunni. Ef þú ert nú þegar með aðgang að isnic að þá slærðu inn notendanafið þitt og lykilorð og smellir svo á áfram. Ef þú ert að kaupa lén í fyrsta skipti að þá þarftu að smella á (Skrá nýjan tengilið (fá nýtt NIC-auðkenni)). Nú opnast síða með eyðublaði á sem þú þarft að fylla út og smella á áfram og við það sendist staðfestingartengill og aðrar upplýsingar á netfangið sem þú gafst upp. Þú þarft að fara í póstinn þinn og smella á tengilinn sem þú fékkst sendann. Þegar þú smellir á tengilinn að þá opnast nýr gluggi í vafranum þínum þarf sem þú þarft að smella á staðfesta. Nú er staðfestingu lokið og næsta skref er að slá inn NIC-auðkennið sem þú fékkst sent með staðfestingartenglinum og lykilorðið sem kom í sama pósti.

Þegar þú hefur skráð þið inn að þá kemur upp svokölluð „Mín síða“ og þar getur þú valið um ýmsar aðgerðir sem þú vilt framkvæma. Hérna velur þú „Nýskrá lén“ og þar slærðu inn lénið sem þú vilt og er laust og svo smellir þú á áfram. Hérna velur þú svo vistunaraðila (við erum Netmiðlar ehf) og svo setur þú (ns3.hysir.net og ns4.hysir.net) eða (ns1.hysir.net og ns2.hysir.net) en við úthlutum þér annaðhvorn möguleikann áður en þú ferð í gegnum þetta ferli.

Eftir að staðfesting fæst á prófunum isnic að þá getur þetta tekið 8-36 klukkustundir fyrir lénið að fara yfir á nafnaþjóna.

Tilkynningar

Lokað eftir hádegi ...
Vinsamlegast athugið að lokað verður eftir hádegi í dag 8. des ...
Sterk og veik lykilorð ...
Að gefnu tilefni viljum við benda viðskiptavinum á að ganga úr skugga um...

Allt um okkur

- Síðumúli 1 - Rvk
- 588 4488
- www.hysir.is
Hannað af